24. ágúst 2007 klukkan 14:50
þarf nú varla að segja það en þessi síða er alveg arfaslök og farinn í sumar/vetrar/eilífðarfrí.....farnir á elllífeyrir...later
Feiminn
17. mars 2007 klukkan 18:12
Já pro mótið kláraðist i dag. Menn voru mjög tilfinningaríkar þegar þeir voru að spila og mátti heyra fögn og fleiri alveg langar leiðir en úrslit dagsins eru svo hljóðandi.
A-riðill:
1. Milan (Óli) 7 stig 7 mörk 7 mörk = 0
2. Inter (Jónas) 6 stig 10 mörk 11 mörk = -1
3. Man Utd (Helgi) 4 stig 9 mörk 11 mörk = -2
B-riðill:
1. Valencia (Kristján) 12 stig 13 mörk 3 mörk = 11
2. Barcelona (Rúnar) 3 stig 3 mörk 6 mörk = -3
3. Chelsea (Jói) 3 stig 4 mörk 9 mörk = -5
Undanúrslit
Milan - Barcelona = 2-1
Valencia - Inter = 4-1
3.sætið
Barcelona - Inter = 4-2
Úrslitaleikur
Valencia - Milan = 6-0
Markhæstu menn mótsins..
1.sæti
Fernando Morientes 10 mörk
2.sæti
David Villa 8 mörk
3.sæti
Louis Saha/Zlatan Ibrahimovic 5 mörk
Frábært mót þar sem tilfinningarnar fengu að ráða. Veit fyrir vissu að menn bíða spenntir fyrir næsta móti og svo koma Jón og Danni sterkir inn næst.
-Kristján kveður, sáttur meistari
Feiminn
15. mars 2007 klukkan 23:16
Hvað gerist á laugardaginn?
Promótið hjá okkur félögunum.
Á laugardaginn verður haldið þriðja Pro-mótið í Feiminn mótaröðinni. Líklegt er að nýr sigurvegari verður krýndur þar sem að Jón Gauti verður frá vegna anna. Það er víst að þetta verður stórskemmtilega og spennandi mót enda allir hungraðir í bikar. Mótið verður líklega haldið hjá Óla Berry á Whiskey Stadium en Beerfield Road kemur sterklega til greina einnig.
Það hefur líka heyrst að uppselt sé á alla leikina, nema hjá Rúnna. Því má búast við trylltri stemmningu þar sem snallari og kók verður á boðstólnum.
Hér að neðan verða keppendur leikgreindir auk þess verður giskað hvaða lið þeir munu tefla fram í keppninni. Keppendur:
Kristján Rúnar Sigurðsson.
Nú þegar Jón Gauti Jónsson, núverandi pro meistari er ekki með, þá verður að segjast að Byss sé líklegastur af peyjunum. Hann hefur það allt, hann hefur sófann, stóra sjónvarpið, metnaðinn og reynsluna af úrslitaleik.
Það verður að tippa á það að Byss verði með Valencia í mótinu og hann er víst eitraður með þá Villa og Morientes frammi. Vörnin er samt eitt af hans sterkari vopnum sem og kantspilið, en Canizares verður að standa sig með prýði til þess að Valencia geti náð fram réttum úrslitum.
Meistara Potential: 4 stig af 5 mögulegum.
Rúnar Ingi Erlingsson:
Sígauninn er alltaf lúmskur. Kaupir sér Pepsi max á 75kall og biður svo aðra um smakk á kókinu sem þeir eru að drekka. Rúnninho getur ekki talist líklegur kandídat til þess að vinna mótið en þó er alltaf smá glæta hjá honum. Ég er ekki viss með aðstöðuna hjá Rúnna, en ég efast um að hann eigi pro, playstation, sófa og jafnvel sjónvarp til að æfa sig. Þar sem hann er sígauni. En hann mun berjast um að velja Man Utd eða Barcelona. Strákur búinn að vera sem hálfgerður leigjandi hjá Byss enda staðráðinn að ná góðum úrslitum. Hann kýs að velja Barcelona þar sem að þríeykið Messi,Eto’o og Ronnie eins og hann kallar Ronaldinho munu vera erfiðir. Vörnin veikleiki en allt getur gerst.
Meistara Potential: 1 stig af 5 mögulegum.
Helgi Arason.
Hvað gerir drengurinn nú, það gæti farið svo að Rúnninho og Helgi þurfi að berjast um Man Utd eða Barcelona. Eitt er víst að það fer enginn í Helga, ekki einu sinni Rúnninho. Menn gætu átt von á að fá aðskotahluti í andlitið. Helgi er líklegur kandídat ef hann fer að læra að spila vörn. Það má búast við því að hálft byrjunarliðið hans verði í leikbanni í 2. leik. Vegna þess að drengurinn er ekkert sérlega sleipur í vörninni. Hann er samt eitraður oft á tíðum fyrir framan mark andstæðingana og getur skorað nokkur mörkin. Leikæfingin er samt ekki sú besta en hann veit hvað þetta snýst um og ef hann nær að velja Man Utd er voðin vís.
Meistara Potential: 3.5 stig af 5 mögulegum.
Daníel Guðni Guðmundsson:
Daníel er ekki viss hvaða lið hann muni velja en hann mun bíða með val sitt fram á seinustu. Strákur er alltaf að koma sterkari inn í þetta en hann hefur ekki náð að halda leikæfingunni við eins og sumir aðrir. Hann er samt sem áður búinn að mæta hana upp á síðkastið. Strákur þarf að læra að klára færin einn á móti einum og ef það gerist þurfa andstæðingar hans að hafa varann á. Liðaval hans verður bara að koma mönnum á óvart.
Meistara Potential: 3.8 stig af 5 mögulegum.
Jónas Ingason:
Það kemur mönnum ekkert á óvart hvaða lið Jónas muni velja en það er Inter. Jónas kann einstaklega vel á Adriano enda eru þeir eins og bræður enda báðir örvfættir. Inter er með svaðalega pakka þarna í vörninni og verður erfitt að kljást við það auk þess að “gamli hundurinn” gæti komið með skemmtilegar rispur. En aðallega þurfa menn að gæta Adriano enda einn af bestu mönnum í leiknum. Hefur ekki verið að halda leikæfingunni neitt svakalega við en er ávallt hættulegur fyrir framan markið.
Meistara Potential: 3.95 stig af 5 mögulegum.
Ólafur Þór Berry: Alltaf að koma meira og meira inn í þetta enda orðinn hálfgerður leigjandi eins og Rúnar. Óli kom mönnum á óvart með slakri frammistöðu í seinasta móti og ætlar líklega að bæta fyrir það núna enda líklega á heimavelli. Mun að öllum líkendum velja Milan þar sem að Ronaldo(bollan) mun fara fyrir mönnum. Svo er hann með Pirlo sem stjórnar batteríinu og svo er vörnin einnig rock-soldid.
Meistara Potential: 3.955 af 5 mögulegum.
Jóhann Árni Ólafsson:
Hann hefur ekki verið að halda leikæfingunni við nema kannski í Fifa og er það bæði synd og skömm. Strákur veit samt hvað þetta snýst og vill bikar eins og hinir keppinautar hans. Velur líklega Chelsea þar sem að hann mun stóla mikið á pakkann sem mun myndast á miðjunni með Makelele og Essien í skítverkunum. Svo er hann með heitasta strikerinn í dag að eigin sögn þarna frammi þannig að allt getur gerst hjá dreng í þessu móti.
Meistara Potential: 3.559 stig af 5 mögulegum(aðallega vegna Fifa spilunnar sem hann fær þetta rank)
Liðaskipun mun samt líklega hljóða svona:
Kristján: Valencia
Óli: AC Milan
Jói: Chelsea
Rúnar: Barcelona
Daníel: Arsenal
Helgi: Man Utd
Jónas: Inter Milan -
Kristján
Feiminn
23. febrúar 2007 klukkan 01:29
Eitt og annað er búið að gerast hjá manni...
Þemadagar: Já það eru búnir að vera þemadagar í skólanum þessa vikuna. Flottir dagar til þess að brjóta upp skólavikuna og að leyfa fólki aðeins að slétta úr klaufunum. En það er bara eitt, það er það er alltaf valið ömurlega valkosti fyrir nemendurnar til þess að fara í.
Tökum bara dæmi það sem ég valdi mér,
1.Vopnasala : Hélt að þetta væri eitthvað spicy og verið að tala um þennan bransa eða eitthvað í þá áttina ég meina titillinn bendir til þess, en nei það var ekki þannig heldur kom eitthvað lið frá Amnesty International og var að reyna að fá okkur í þann hóp og var þetta bara leiðinlegur fyrirlestur og það sýndi sig best þegar það var látið alla í salnum fá penna og þá byrjuðu allir að klikka á takkann á pennananum sér til skemmtunar, skemmtanagildi fyrirlestursins var það slæmt að penninn var meira spennandi fyrir fólkið.
2. City of God : Já ég valdi að velja myndina City of God en ég fékk ekki góð sæti sat við hurðina og var tjaldið sem myndin var sýnd alveg við gluggann þannig að ég gat varla lesið textann á myndinni en það er svoldið mikilvægt þegar þú ákveður að horfa á þessa mynd því hún er á portúgölsku því skemmtilega hrognamáli. Ákvað bara að láta mig hverfa þar sem ég sá engann tilgang að hlusta á mynd á portúgölsku.
3. Viðskipti við þriðja heim: Veit ekki af hverju ég valdi þetta en ég lét þó til slag standa og fór á þennan fyrirlestur sem var nú ekkert sérstaklega spennandi. Talandi um hvað við höfum það gott hér á norður parti jarðarinnar en suðrið hefur það slæmt. Var verið að tala um hvað fólk sem ræktar banana hefur það slæmt þar sem þau vinna við mikið eitur og þau sýkjast af því eða verða fyrir geislun og börnin þeirra verða ekki heilbrigð. Var látið okkur fá bæklinga um þetta og svona og ég fór bara að hugsa, hvers vegna gera þeir ekki sem eru að búa til þessa bæklinga sem hlýtur að kosta pening, geyma þann pening og gefa fólkinu bara geislabúning, í staðinn fyrir að láta okkur fá bækling sem fer umsvifalaust í ruslið á leiðinni út. Fór bara svona aðeins að hugsa. Svo var látið okkur fara í hópa og tjá okkur um þetta og lesa eitthvað verkefni og ég fékk nóg þá og fór bara á röltið á göngunum þar sem mér líður vel.
4. Hótel Rwanda (Lord of War): Svo valdi ég Hótel Rwanda en hún týndist einhvern veginn, líklega bara rænd þannig að það var ákveðið að setja Lord of War í tækið en ég var búinn að sjá hana þannig að ég þurfti ekkert að vera þarna. Fór bara á röltið með strákunum þar sem ég geri mína bestu hluti þegar þemadagarnir eru, það er að segja skoða hvað aðrir eru að gera og svona. Borða kleinuhringa og kökur og þannig háttar fæ ég ágæta starfsþjálfun til þess að vera bandarískur lögreglumaður.
En í hádeginu þá koma mínir hæfileikar í ljós, það er að borða, spila forseta og henda svo sem einum brandara milli gjafa. En merkilegt finnst mér hvað kennarnarnir taka þessu mætingardóti á þemadögum alvara, ef þú mætir ekki þá er það fyrir þeim eins og að mæta ekki í samræmduprófin. Rosalega tense á þessu. Svo á alltaf að vera svona uppskeruhátið á föstudeginum, uppistand og svona atriðið og svo grillveisla, nema það er kaffihúsarkvöld og það mætir líklega enginn vegna þynnku, þó svo það lauma sér örugglega nokkrir inn en þeir sem það gera eru vel þunnir.
Svo er eitt sem fer svakalega í taugarnar á mér. Það er öll umfjöllunin um Anna Nicole Smith, hverjum er ekki drullusama um allt þetta, get varlað horfa á sjónvarpið eða lesið dagblaðið án þess að lesa nokkrar greinar eða horfa á nokkra þætti um þetta, farið að tala um alvöru fréttir í sjónvarpinu.
Svo er Keflavík-Njarðvík á morgun, hvet alla til þess að mæta...byrjar klukkan 19.15
Kveðja Kristján...étandi gangavörður
Feiminn
23. janúar 2007 klukkan 22:42
Jæja þá er handboltaæðið runnið yfir fólk enn og aftur. Ísland valtaði yfir frakkana með stæl í gær og kom sér í milliriðla. Ég trúi vel að strákarnir ætluðu að sýna öllum hvað í þeim býr sérstaklega þar sem það var búið að hrauna yfir þá eftir tapleikinn gegn Ukraine. Svo er fólk sem röflar yfir því hvað íslendingar séu mikil fífl því þegar Ísland er að gera það gott þá eru öll þjóðin fyrir framan skjáinn að deyja úr stressi og öskrandi úr sér lungun þegar Guðjón Valur smellir honum í netið. Ég er ekki mikill handboltaaðdáandi en þegar Ísland er að spila þá er ég þessi gæji sem er allt í einu þvílíkur fan. Mér finnst það bara fínt þó svo að ég fylgist venjulega ekki með þessu. Þetta er allavega skárra en að horfa á Guiding light eða eitthvað þannig. Svo á maður auðvitað að styðja Ísland ávallt þegar það spilar ef þú gerir það ekki þá ertu fyrst lúði. Þó svo að þú kannt ekki reglurnar í handbolta eða ekki því, eina sem þú þarft að kunna er að segja Áfram Ísland!!! og jáááá eða vúhú eða koma svo strákar!!! Þetta er bara svipað hjá okkur í körfunni. Mætir enginn á deildarleikina nema alltaf sama góða fólkið en svo þegar við komumst í 4.liða úrslit þá er alltaf fullt hús og allir að fagna og hvetja.
Við í Njarðvík skelltum okkur á toppinn í vikunni með sigri á Hamar, en KR tapaði og því eru þeir ekki með okkur á toppnum ennþá. Smá frí núna en næsti leikur er 2febrúar. En á næstunni eru hörkuleikir t.d. gegn Grindavík,KR,Keflavík,Snæfell, en það eru 9 leikir eftir að tímabilinu.
Smá svona tip að þá mæli ég með að þið farið ekki á Night at the museum, hún er ekki góð nema þú viljir fara með 12 ára frænda þínum eða frænku. Boston legal er nú einn af mínum uppáhaldsþáttum en hann er alveg búinn að vera að tapa sér upp á síðkastið, einhver dvergkona að gera allt brjálað og Denny Crane er alveg hættur að fara í réttarsalinn sem er alveg glatað er að hugsa um að senda bréf og láta þá vita af þessu. Sendi þetta bréf ásamt hinu bréfinu sem ég ætla að senda en það er að banna 24 þættina.
Don't fear me gypsy, I only want your tears
Kristján Sagidyaf
Feiminn
16. janúar 2007 klukkan 05:22
Er ekki sammála Pavel með 24, finnst þetta bara ömurlega leiðinlegir þættir. Veit ekki hef reynt að komast inn í þetta en mér finnst þessi Sunderland gæji hundleiðinlegur. Finnst samt eins og ég sé eini sem fíla ekki þessa þætti. Finnst eins og ég hafi verið sá eini sem var ekki valinn í liðið. Samt sammála Pavel með Justin diskinn en hann er að gera góða hluti eða búnn að gera það í nokkurn tíma.
Fór í afmæli hjá Pálínu um helgina. Var mjög gaman en ég drakk samt eins og ég drekk, en ég komst heim með Flybus og kom heim um 6 um morguninn. Mamma náði í mig á flugvellinum. Var svoldið ævintýri og eiginlega gaman þótt að ég hafi litið eins og Snæfinnur Snjókarl þegar ég labbaði inn á BSÍ.
Fimmtudaginn er hörkuleikur en við erum að fara að keppa á móti Skallagrím, gæti verið að áhorfendurnir hjá Borgarnesi reyni að prófa að hvetja Borgarnes á þann hátt sem að Pavel vill að þau geri. Kemur í ljós.
Ætla ekki að hafa þetta lengra, reyni kannski að koma með eitthvað meira seinna...
Kristján...nýjasti bílstjórinn hjá Flybus
Feiminn
12. janúar 2007 klukkan 19:27
Aetla ad fylgja eftir godri faerslu med thessum ordum..Var ad ljuka 3 seriu 24, vinda ser beint i tha 4..Jack ad gera frabaera hluti..
Nyji Justin diskurinn ad gera goda hluti, kann samt ekki ad meta rolega justin, kann betur vid dansjustin, svo madur getur tekid nokkur dansspor herna..Er kominn med nokkra nyja dansa sem verda frumsyndir i sumar, ohaett ad segja ad teir munu ekki svikja neinn...Fillinn er daudur...
Horfdi a leik Skallagrims og Keflavik um daginn a ruv.is..Margt vid leikinn sem vakti athygli mina, til ad byrja med tha voru lysararnir i bullinu, thvilik leidindi og thunglyndi ad hlusta a tha, thegar Maggi var med skotsyningu voru teir bara "ja tetta var sko gott skot hja Magnusi"..Annad sem eg tok eftir er ad ahorfendur skallagims eru teir somu og voru a leikjum fyrir 13 arum thegar pabbi var ad spila tarna og tad sem er verra er ad teir oskra enntha sama hlutinn "Borgarnes klapp klapp klapp borgarnes klapp klapp klapp"..tetta er ordid gamalt, thess vegna kem eg med uppastungu. BOOOOOOORRRRRR(haegt)GARNES(hratt) ..Er eitthvad nytt allavega..
Jaeja var nu ekkert meira en tetta..
Pavel
Feiminn
08. janúar 2007 klukkan 05:49
Thattarodin 24 hefur verid ad trollrida veroldinni i langann tima, eg hafdi hinsvegar aldrei mikinn ahuga a ad kynna mer tetta undur neitt nanar..En nuna fyrir nokkru var eg a ferdalagi um evropu vegna evropuleiks og datt mer eitt stykki 24 seria i hendurnar..Tar sem ferdalagid er mikid og langt og eg var buinn ad sja alla family guy thaettina i tolvunni minni margsinnis akvad eg ad skella kvikindinu i...Til ad gera langa sogu stutta horfdi eg a alla seriuna sem eru 24 klukkutimar a 4 dogum, og let tattuera Jack Bauer a eina rasskinnina og David Palmer a hina..Eg er gjorsamlega gagntekinn, Jack Bauer gerir tad sem hann tarf ad gera, ef hann tharf ad forna nokkrum lifum og thar a medal sjalfum ser tha gerir hann tad hiklaust..En a sama tima er hann mean lean killin machine..Hringingin i simanum minum er meira ad segja eins og i thattunum..
Madur kom ekkert heim um jolin, var herna ad aefa og bolvandi ollum i sand og osku...Heyrdi tad ad sjalfsogdu enginn..Heyrdi i monnum yfir hatidirnar og attu flestir eitt sameiginlegt, ad their voru annad hvort ad koma af eda ad fara a djammid..Tad var eikkad litid um tad herna en madur tok samt agaetis skrall a gamlarskvold.Var reyndar i daprari kantinum enda engin islensk popphljomsveit ad spila undir...
Aetladi nu bara ad skrifa eikkad svo ad thunglyndid og neikvaednin sem Stjani synir her ad nedan hafi ekki mikil ahrif a siduna..En tad verdur ekki tekid af drengnum ad hann a ordu skilid fyrir ad vera alltaf ad skrifa herna..Og tar sem eg hef laert svo mikid af Jack Bauer tha akvad eg ad fylgja hans fordaemi og forna sjalfum mer og skrifa nokkur ord..
Er ad fara til Ljubljiana (er lett agiskun a hvernig tad er skrifad) a morgunn og dusa tar fram a fimmtudag en tha mun eg snua aftur til Spanar og halda beint til Murcia tar sem vid s[ilum i deildinni..En hafid ekki ahyggjur, Jack verdur mer vid hlid..
Kvedja, Pavel Bauer
Feiminn
07. janúar 2007 klukkan 19:13
Þessi bloggsíða er nú daprari en dagskráin RUV, en það er í lagi. Ekki mikið að gera hjá mér þessa dagana. Nenni ekki að tala um jólin og gamlárs því það er búið og mér finnst ekki gaman að tala um að ég hafi verið á filleriíi eða eitthvað. Annars er skólinn að byrja sem er allt í lagi því ég hef ekki verið að gera neitt af viti. Þetta verður ekki meira að sinni bara svona aðeins að skrifa. Þetta er ekkert besti pistillinn en því að hafa besta pistilinn svona snemma á árinu.
Er farinn...hafiði það gott
-kristján
Feiminn
11. desember 2006 klukkan 22:15
Þá er maður lentur frá Úkranínu eins og Atli Eðvalds vildi kalla þetta land en ég við lentum nákvæmlega á miðnætti á föstudeginum.
Stemmningin á leiknum var alveg einstök þarna úti. Þeir voru að rústa okkur og klikkuðu ekki úr skoti og þetta er ekkert djók, en þótt að þeir voru að rústa með 30 stigum þá var allt brjálað í stúkunni, eitthvað öðruvísi en við eigum að venjast hér heima. Skemmtilega lífsreynsla að fara þangað annað get ég ekki sagt.
Næsta ferð er til Eistlands en það er sjötti og seinasti leikurinn í þessarri keppni en úrslitin skipta ekkert svakalegu máli fyrir okkur þar sem við komumst ekki upp úr riðlinum. Millilent verður í Svíþjóð þar sem að Marcello Lippi í vör ræður ríkjum.
Finniði lykt? Vonandi ekki því að ég skeit alveg á mig í nát 113 í morgun, ég hreinlega gat ekkert, áttum að teikna hér og þar, t.d. hvar jarðskjálftabelti eru og ég veit ekki hvað, ég meina hverjum er ekki sama hvar þessi belti eru, þegar maður heyrir að það er að koma jarðskjálfti að þá er það of seint og maður hristist eins og versti Tourette-sjúklingur, (no-offense á tourette sjúklinga samt) og líka að það er ekki eins algegnt að finna fyrir jarðskjálfta eins og að vatnið renni í krananum. En seinasta prófið er á morgun og þá tekur maður eitt Austin Powers hopp. Talandi um Austin Powers að þá ætla ég að setja saman annan söfnunarsjóð svo ég geti keypt Austin Powers búninginn sem mig langar að vera í þegar búningapartýið er, heyrði nefnilega þegar ég kom heim að það sé búið að láta fólk vita af þessu partý og er fólk búið að gleyma að það séu að koma jól vegna þess að þetta teiti er í svo mikilli eftirvæntingu í huga þeirra. Muna bara allir að reyna að gera sem best úr þessum búningum en það verður veitt verðlaun fyrir einhvern búning,bestan eða eitthvað, svo mun spilið hans Jóns lýsa dagsins ljós í fyrsta skiptið. Baldvin og Bibbi koma í þetta partý beint frá Danmörku og muna þeir koma með svona skemmtilegan danskan keim í þetta þannig að þetta partý verður alvöru krydd en þó ekki makidónskt.
(Mæli með myndinni Dead or Alive. Stórskemmtileg thriller, drama með smá asískum keimi. Oft sögð vera í andi Kill Bill myndanna. Mun berjast um jólin við The holiday sem jólamynd ársins, en mér var sagt að Charlie Jack Richards hefði tjaldað fyrir utan bíóið til þess að ná besta sætinu fyrir þessa mynd. Hann átti einnig að hafa brjálast þegar lögreglan sagði honum að það væri meira en nóg að tjalda þarna aðeins 1 degi fyrir sýning, en hann var mættur þarna viku fyrir og var farinn að valda töluverðum usla með hrópum, slæmri lykt og öðrum óhreinleika.)
Vill samt biðja fólk að gefa mér upplýsingar ef það veit um einhverjar búninga fyrir mig eða leigur eða eitthvað,
svo bara svona í lokin........i am not an eskimo, i am an viking!
-Kristján
Feiminn